|
|
 |
 |
Thursday, February 09, 2006
Það er hér með tilkynnt að þessi síða mun ekki lengur hýsa hugarburð minn í netheimum.....nýja slóðin er aftur á móti;
http://www.blog.central.is/sponsSjáumst þar!!
Posted at 11:57 pm by gudrun
Permalink
Monday, October 31, 2005
Maður veit að maður hefur ekki verið nógu dugleg/ur við að blogga þegar...
Dísa og Kolla leggja ekki fyrir mann svona asnalegan spurningalista sem gengur á milli blogga hraðar en inflúensa á elliheimili þessa dagana. Ákvað að vera svona passlega bitur yfir þessu sinnuleysi vinkvenna minna og svara bara asnalega spurningalistanum samt! ;)
Það er samt spurning hversu mikið verður að marka þetta þar sem ég er í vinnunni að nóttu til og BARA búin að drekka sex bolla af kaffi....
núverandi tími: 02:51
núverandi föt: svaka smart vinnu unit...í boði Lundar, dvalar- og hjúkrunarheimilis....og svört jakkapeysa yfir.
núverandi skap: er í ágætis skapi ásamt samstarfskonu minni. Það má segja að við séum í góðum sköpum :)
núverandi hár: dökkt, slétt, flott.
núverandi pirringur: í sögulegu lágmarki
núverandi lykt: vanilla að venju
núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: ekkert spes. Þrífa e-a göngugrind, kannski....
núverandi skartgripir: grænir eyrnalokkar.
núverandi áhyggja: núverandi áhyggjur mínar beinast nær eingöngu í þá átt að til sé fólk sem telur orðið áhyggjur vera til í eintölu. Þetta bara hlýtur að vera staðreyndavilla. Áhyggja? Come on......
núverandi löngun: bað, rauðvín, kertaljós og tónleikadisk með Keane , Starsailor eða Coldplay myndi ég þiggja á stundinni, væri slíkt í boði...og ég ekki í vinnunni. Kynlíf eftir á...eða bara súkkulaði.
núverandi ósk: öflugt hjálparstarf á hamfarasvæðunum í Pakistan. Það væri líka gaman að fá vænan lottóvinning og að Gísli Marteinn myndi floppa svo illilega í komandi prófkjöri að ekki einu sinni hreinsunardeild Reykjavíkurborgar tæki hann í vinnu eftir það. Gísli Marteinn *hrollur*
núverandi farði: smá slikja af túrkísbláum augnskugga og passlegt magn af eye-liner og maskara við.
núverandi eftirsjá: síðustu 4 ár og það sem ég hef og hef ekki gert á þeim árum. Hrein sóun á dýrmætum tíma. Sé líka eftir að hafa ekki farið á landsfund um síðustu helgi. Bömmer.
núverandi vonbrigði: að vera enn ekki orðin gáfaðri en svo að ég læt enn stjórnast af vilja og þörfum u.þ.b. allra í kringum mig en ekki mínum vilja eða löngunum. Stefni að því að vaxa uppúr þessu fyrr en síðar.
núverandi skemmtun: af skornum skammti...lyfjaskápurinn er læstur á nóttunni.
núverandi ást: æ....bleh. Fyrir utan dóttur mína og aðra nánustu? Engin. Ást er stórlega ofmetin.
núverandi staður: Hella á Rangárvöllum....búseta í Landeyjunum.
núverandi bók: á að vera að lesa Hámarks árangur e. Brian Tracey...gleymdi henni bara heima hjá Kristrúnu. Er að lesa Alkemistann e. Paulo Coehlo....í 3ja sinn.
núverandi bíómynd: Groundhog Day. Á topp 5 listanum mínum yfir bestu myndir sem ég hef séð.
núverandi íþrótt: ganga og grindarbotnsæfingar.
núverandi tónlist: er að rifja upp kynni mín af Nirvana og Beatles. Er líka dugleg að hlusta á Coldplay, Keane, David Bowie, Emiliönu Torrini og James Blunt. Svo má ekki gleyma Nick Cave og 3falda b-sides disknum sem Dísa gaf mér. Gull.
núverandi blótsyrði: djöfull og andskoti. Stundum bara Hlöðver.
núverandi msn manneskjur: ekki ég, svo mikið er víst....
núverandi desktop mynd: eitthvað hundakyns.
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: í fyrramálið vonast ég til að komast heim til mín að sofa. Kvöldið verður bara að bíða...horfi samt að öllum líkindum á OC og CSI...svo fer á á WC og RIP og svo bara OK.... skemmtilegar þessar skammstafanir =)
núverandi manneskja sem ég er að forðast: engin í daglegu lífi. Forðast að horfa á dagskrárliði í sjónvarpi sem bjóða uppá að Þorgerður Katrín menntamálaráðherra sé að spóka sig. Eitur í mínum beinum.
núverandi dót á veggnum: Absinth plakatið mitt, ægishjálmur og íkonmynd eftir Mæju frænku.
Heh.....ég klukkaði sjálfa mig...
Posted at 2:56 am by gudrun
Permalink
Thursday, August 25, 2005
Dísa vinkona er orðin húsmóðir í Árnessýslunni, í fullu dagskólanámi í F.Su. Uppá síðkastið hefur hún varið frítíma sínum í það að smíða snúrustaura og baka súkkulaðimöffins. Kolla er ófrísk, lítill fugl hvíslaði því að mér að hún sé líka trúlofuð...og hún og Andri eru búin að kaupa raðhús á Selfossi. Hafþór er horfinn til náms í nútímafræðum við Háskólann á Akureyri og Kristrún er byrjuð í fjarnámi í markaðsfræði við sama háskóla. Jón Hjörtur er utan þjónustusvæðis og Sverrir líka...líklega eru þeir strand á e-i Kyrrahafseyju...kannski eyjunni hans Elvis? Aðalfundur UVG á Hótel Lind 3. sept. Stefni á að fara þangað...tjá mig og hlusta á aðra..bara gaman. Aðrir hlutir á stefnuskránni eru að læra að hekla og flækjast ekki inní barnamafíuna. Getnaðarvarnir eru góðir hlutir..það er sannað!
Posted at 6:18 pm by gudrun
Permalink
Monday, May 09, 2005
Ég er í eitthvað skringilegu skapi þessa dagana. Afi minn dó á mánudaginn fyrir viku og var jarðaður á laugardaginn. Skrýtið hvernig dauðinn getur hat stórkostleg áhrif á mann, þó svo að maður geri sér grein fyrir því að líf viðkomandi sé í raun löngu búið og dauðinn sé kærkomin líkn. Samt er það alltaf sárt að missa einhvern sem maður elskar.
En lífið heldur, sem betur fer, áfram. Allt sumarið er fram undan; yndislegar stundir með enn yndislegra fólki, skólinn í haust (have I said that before? ;)), og endalaust mikið að gera og gerast.
Er ekki um að gera að leyfa lífinu að vera eins frábært og það getur orðið?
Posted at 1:11 pm by gudrun
Permalink
Thursday, January 20, 2005
The lost daughter returns
Já...gleðilegt ár og allt það! Bloggleysi undanfarinna mánaða stafar ýmist af tímaleysi eða steindauðri nettengingu. And still, eftir allan þennan tíma er ekkert að frétta. Ég er á móti því að það sé eitthvað að frétta..engar fréttir eru, jú, góðar fréttir. Ég varð tvítug þ. 27. des. sl. en það eru í sjálfu sér engar fréttir. Ég er búin að fá nóg af sveitinni í bili og stefni á það að flytja í bæinn í næstu viku helst, kannski þar næstu (eiginlega alveg í seinasta lagi). Fyrir þá sem þekkja mig eru það ekki heldur neinar fréttir. Aðal fréttirnar eru kannski þær að nú ætla ég í eitt skipti fyrir öll að losa mig við vítistækið sem ég kalla bílinn minn og kaupa mér fartölvu á næstu mánuðum. Það eru aðal fréttirnar...einkum og sér í lagi þegar tekið er mið af því að án bíls er ég fötluð og svo er ég technically declined manneskja á háu stigi og verð líklega nýbúin að læra á tölvuna þegar hún verður orðin úrelt. C´est la vie. Nú hlýtur maður að spyrja sig..."af hverju að fá sér fartölvu?". Það nefnilega leyndó, sjáðu til. Nú, þegar öll leyndarmál eru horfin úr mínu lífi, verð að skapa þau sjálf, ekki satt?
Kuntan var að hefja störf á gamla vinnustaðnum mínum (GAMLA í orðsins fyllstu...); Hrafnistu. Ég er ekki frá því að mig langi til að fara að vinna þar aftur, vera dauðþreytt eftir næturvaktir og knúsa gamla fólkið mitt "góða nótt" á kvöldin. Vinn í því seinna...núna drekka kaffi og hitta JohnDeere. Sé þig.
Posted at 4:09 pm by gudrun
Permalink
Wednesday, November 24, 2004
Ég er eitthvað þreytt í dag. Langar að henda inn löngu bloggi sem enginn nennir að lesa en ég nenni því ekki einu sinni. Þangað til að það gerist veistu þó allavega að ég er á lífi.
Posted at 11:07 am by gudrun
Permalink
Sunday, November 07, 2004
Quotes....fæ bara ekki nóg af þeim!
Interestingly, according to modern astronomers, space is finite. This is a very comforting thought-- particularly for people who can never remember where they have left things.
Woody Allen
In heaven all the interesting people are missing.
Friedrich Nietzsche
The man of knowledge must be able not only to love his enemies but also to hate his friends.
Friedrich Nietzsche, Ecce Homo, Foreword
Everyone thinks of changing the world, but no one thinks of changing himself.
Leo Tolstoy
Things should be made as simple as possible, but not any simpler.
Albert Einstein
None are so hopelessly enslaved as those who falsely believe they are free.
Goethe
Hefurðu heyrt það sannara?
Posted at 12:47 am by gudrun
Permalink
Friday, October 22, 2004
..saknaðirðu mín? Örugglega ekki! Nú...er það? Í alvörunni? Nei...þú ert að ljúga.
Ég er komin í sveitina enn á ný. Og ef þú þykist vera geðveikt hissa núna þá skaltu bara hætta því...því þú ert pottþétt á einn hátt eða annan búin/n að frétta það og ég sé ekki svona uppgerðar "vá-ég-er-svo-aldeilis" andlit í gegnum tölvuna. So sorry.
Hvað er ég búin að vera að gera fyrir utan það að blogga nákvæmlega ekkert? Tjah...stórt er spurt. Læra og vinna. Punktur. Og, jú, reyndar fara í eina þrælskemmtilega bæjarferð með hnátunni og gera helling af hlutum sem koma þér ekkert við. Sakna Reykjavíkur á sama tíma og ég er fegin að vera laus þaðan. Hugsa um litlu krakkaskrímslin mín og hafa gaman af lífinu. Fara með tölvuna í viðgerð (skipt um móðurborð), koma með hana heim, geðveikt happy og komast svo að því að það er vírus í greyinu. Nýta mér 24 hour tölvuþjónustu míns fyrrverandi og pirrast yfir því að vera með hægustu tengingu í HEIMI. Glotta útí annað yfir Idolinu. Hugsa svo með mér að þessi nettenging er ekkert svo slæm og að ég er þó með nettengingu...annað en litlu svöngu börnin í iðrum Afríku. Þau hafa líka sól..það er frost hérna hjá mér. Litlu börn í Afríku....lucky bastards.
Að svo mæltu ætla ég að fara einhvert annað og fá mér bjór. Tölvan mín selur nefnilega ekki bjór.
Á meðan ég drekk minn bjór ætla ég að íhuga hvort yfirskrift þessa bloggs skuli breyta í "The Countryside Chronicles".
Hljómar ekki vel. Hljómar kannski betur á 5ta bjór?
Posted at 11:02 pm by gudrun
Permalink
Tuesday, September 07, 2004
Ákvað að henda inn einum laufléttum texta líka....enjoy!!
Nick Cave and the Bad Seeds
The Curse of Millhaven
I live in a town called Millhaven
And it's small and it's mean and it's cold
But if you come around just as the sun goes down
You can watch the whole town turn to gold
It's around about then that I used to go a-roaming
Singing La la la la La la la lie
All God's children they all gotta die
My name is Loretta but I prefer Lottie
I'm closing in on my fifteenth year
And if you think you have seen a pair of eyes more green
Then you sure didn't see them around here
My hair is yellow and I'm always a-combing
La la la la La la la lie
Mama often told me we all got to die
You must have heard about The Curse Of Millhaven
How last Christmas Bill Blake's little boy didn't come home
They found him next week in One Mile Creek
His head bashed in and his pockets full of stones
Well, just imagine all the wailing and moaning
La la la la La la la lie
Even little Billy Blake's boy, he had to die
Then Professor O'Rye from Millhaven High
Found nailed to his door his prize-winning terrier
Then next day the old fool brought little Biko to school
And we all had to watch as he buried her
His eulogy to Biko had all the tears a-flowing
La la la la La la la lie
Even God's little creatures, they have to die
Our little town fell into a state of shock
A lot of people were saying things that made little sense
Then the next thing you know the head of Handyman Joe
Was found in the fountain of the Mayor's residence
Foul play can really get a small town going
La la la la La la la lie
Even God's children all have to die
Then, in a cruel twist of fate, old Mrs Colgate
Was stabbed but the job was not complete
The last thing she said before the cops pronounced her dead
Was, "My killer is Loretta and she lives across the street!"
Twenty cops burst through my door without even phoning
La la la la La la la lie
The young ones, the old ones, they all gotta die
Yes, it is I, Lottie. The Curse Of Millhaven
I've struck horror in the heart of this town
Like my eyes ain't green and my hair ain't yellow
It's more like the other way around
I gotta pretty little mouth underneath all the foaming
La la la la La la la lie
Sooner or later we all gotta die
Since I was no bigger than a weavil they've been saying I was evil
That if "bad" was a boot that I'd fit it
That I'm a wicked young lady, but I've been trying hard lately
O fuck it! I'm a monster! I admit it!
It makes me so mad my blood really starts a-going
La la la la La la la lie
Mama always told me that we all gotta die
Yeah, I drowned the Blakey kid, stabbed Mrs. Colgate, I admit
Did the handyman with his circular saw in his garden shed
But I never crucified little Biko, that was two junior high school psychos
Stinky Bohoon and his friend with the pumpkin-sized head
I'll sing to the lot, now you got me going
La la la la La la la lie
All God's children have all gotta die
There were all the others, all our sisters and brothers
You assumed were accidents, best forgotten
Recall the children who broke through the ice on Lake Tahoo?
Everyone assumed the "Warning" signs had followed them to the bottom
Well, they're underneath the house where I do quite a bit of stowing
La la la la La la la lie
Even twenty little children, they had to die
And the fire of '91 that razed the Bella Vista slum
There was the biggest shit-fight this country's ever seen
Insurance companies ruined, land lords getting sued
All cause of wee girl with a can of gasoline
Those flames really roared when the wind started blowing
La la la la La la la lie
Rich man, poor man, all got to die
Well I confessed to all these crimes and they put me on trial
I was laughing when they took me away
Off to the asylum in an old black Mariah
It ain't home, but you know, it's fucking better than jail
It ain't such bad old place to have a home in
La la la la La la la lie
All God's children they all gotta die
Now I got shrinks that will not rest with their endless Rorschach tests
I keep telling them they're out to get me
They ask me if I feel remorse and I answer, "Why of course!
There is so much more I could have done if they'd let me!"
So it's Rorschach and Prozac and everything is groovy
Singing La la la la La la la lie
All God's children they all have to die
La la la la La la la lie
I'm happy as a lark and everything is fine
Singing La la la la La la la lie
Yeah, everything is groovy and everything is fine
Singing La la la la La la la lie
All God's children they gotta die
Posted at 8:30 pm by gudrun
Permalink
veit ég hreinlega ekkert hvað ég vil. Hvað mig langar læra í framtíðinni eða hvað mig langar að verða þegar ég verð stór. Ég er í svona "Dísarkreppu" einsog kunningi minn orðaði það.
Þegar ég er í þessum gír (sem er örugglega alveg einu sinni í mánuði..og þá jafnvel í 10-20 daga í einu), á ég frekar erfitt með að umgangast fólk sem veit NÁKVÆMLEGA hvað og hvert það ætlar sér; fólk sem fæddist bara með þá köllun að verða dýralæknir eða eitthvað slíkt....veit nákvæmlega hvað það þarf að læra og gera og þegar það er búið að læra sitt fag, fer það að vinna við fagið, finna sér lífsförunaut, koma sér upp heimili og eignast kannski börn. Hættir svo að vinna við fagið og fer á eftirlaun 67 ára...nú eða bara þegar Ríkið segir viðkomandi að hann/hún sé nógu gamall/gömul til að fá borgað fyrir það. Fyrir að eldast, þ.e.a.s.. Þarna í millitíðinni hefur viðfangsefnið okkar keypt sumarhús í Skorradalnum eða útá Spáni, ferðast um landið og séð alla "merkilegustu" staðina, haldið ótal kokteilboð, lært ca. 2 tungumál í frístundum, grillað sem svarar 130 lömbum af kótilettum og lærissneiðum og breytt um lífsstíl allavega 3svar.
Enn aðrir taka lífið með trompi; eru (fyrir utan allt það sem ritað var hér að ofan), pólitískt aktívir (helst blárra megin við línu), fjárfesta í hlutabréfum og 3 séreignalífeyrissjóðum minnst (!), spila reglulega golf og fara uppúr fimmtugu að læra að spila bridds svo að það sé nú ekki eitthvað sem viðkomandi strandar á þegar hann/hún sest í helgan stein í sumarhúsinu á Spáni.
Nú hljómar þetta alls ekkert illa...þvert á móti kann þetta fyrir sumum að hljóma mjög vel. Fyrir mér hljómar þetta aftur á móti einsog arameiska með maltneskum slanguryrðum. Ég bara sé ekki sjarmann við þetta líf.
Auðvitað breytist fólk og nú, í þessum lesnum orðum kannt þú, lesandi góður, kannski að hugsa með þér: "Hvaða, hvaða...tvítugur krakki að tjá sig um framtíðin..hvenær hefur eitthvað verið að marka svoleiðis?". Það er nefnilega málið. Það er bara eiginlega ekkert að marka svoleiðis...sérstaklega þegar þetta næstum-því-orðið-tvítuga-krakkagerpi veit ekkert hvað það vill. Kannski er einfaldlega mín skoðun að þetta líf sem ég lýsti svo skilmerkilega hér að ofan sé ógeðsleg formúla sem ætti að banna með lögum. Í samhliða vídd er það jafnvel staðreynd.
En svo er það aðalpælingin...þessi sem heldur mér stundum vakandi á nóttinni...er ég kannski bara öfundsjúk? Er þetta það sem mig virkilega langar til að vera?
Posted at 8:17 pm by gudrun
Permalink
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|